Fréttir / News

3.9.2010

90% fyljun hjá Blysfara

Búið er að sónarskoða þær hryssur sem voru hjá Blysfara frá Fremra-Hálsi í sumar, en hann var í hólfi á Lækjamóti. Blysfari fór í hryssur eftir Miðsumarsýningu á Vindheimamelum í júlí og voru 30 hryssur hjá honum í sumar. Alls voru 27 hryssur fengnar eftir sumarið og því er fyljunarhlutfallið 90% sem verður að teljast mjög gott. Stærstur hluti þeirra hryssna sem eru fengnar við Blysfara eru 1. verðlauna hryssur enda var folatollurinn frír fyrir 1. verðlauna hryssur í sumar.

Má nefna að hjá honum voru þær Gáta frá Ytra-Vallholti (8,40), Ófelía frá Breiðstöðum (8,18), Smella frá Flugumýri (8,08), Rauðhetta frá Lækjamóti (8,01), Hrönn frá Leysingjastöðum (8,00), Rödd frá Lækjamóti (8,06), Rán frá Lækjamóti (8,22), Dalla frá Ási (8,01), Bestla frá Kagaðarhóli (8,03), Alda frá Syðri-Völlum (8,06), Hending frá Sigmundarstöðum (8,11), Sóllilja frá Halldórsstöðum (8,06), Þruma frá Viðborðsseli (8,00), Ösp frá Minni-Reykjum (8,10), Gola frá Leysingjastöðum (8,14), Svala frá Ólafsfirði (8,06) og Eldborg frá Eyri (8,11) auk fjölda annarra góðra hryssna.


Gáta frá Ytra-Vallholti                                                   Ófelía frá Breiðstöðum


Smella frá Flugumýri                                                           Rauðhetta frá Lækjamóti



Hrönn frá Leysingjastöðum                                                       Rödd frá Lækjamóti

Skrifað 3.9.2010 kl. 12:53 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.8.2010

Fjöruferð

Friðrik og Sonja skruppu í fjöruna við ósa Austari-Héraðsvatna til að ríða út á og þjálfa þá Dag frá Hjaltastaðahvammi og Kvaran frá Lækjamóti. Það er skemmtileg tilbreyting að ríða út á stöðum sem hestarnir þekkja ekki og er góð viðbót í þjálfuninni fyrir hestana. Hér á eftir fylgja nokkrar myndir.


Friðrik and Sonja went to the beach in Skagafjörður today to train two of their horses, Dagur from Hjaltastaðahvammur and Kvaran from Lækjamót. Riding horses in new environment is a big part of the training and using the nature is a perfect way to inspire horse and rider and strengthen the connection between man and a horse.



Friðrik og Dagur frá Hjaltastaðahvammi


Sonja og Kvaran frá Lækjamóti


Skrifað 25.8.2010 kl. 16:14 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.8.2010

Vera og Dagný fengnar við Vilmundi

Í gær komu fyrstu hryssurnar heim frá stóðhesti þetta sumarið. Þær Vera og Dagný frá Hjaltastaðahvammi eru báðar fengnar við Vilmundi frá Feti og nú er bara að bíða fram á næsta vor eftir afrakstrinum. Vilmundur stóð eins og flestir vita efstur í flokki 5. vetra stóðhesta á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2006 og er undan heiðursverðlaunahrossunum Orra frá Þúfu og Vigdísi frá Feti.



We covered two of our mares with Vilmundur from Fet this summer, so we are expecting foals sired by him in 2011. The mares which are pregnant by Vilmundur are Vera, sired by the honorary price stallion Hróður from Refsstaðir, and Dagný which is sired by Feykir from Hafsteinsstaðir. Vilmundur is as some might already know sired by the famous Orri from Þúfa and his dam is Vigdís from Fet. Both have received honorary price for their offspring's. Vilmundur has a total score of 8,56 including 7,96 for conformation and 8,95 for riding abilities.



Vilmundur frá Feti á LM 2006 / Vilmundur from Fet at Landsmót 2006



Vera er undan Hróðri frá Refsstöðum                                  Dagný með Dáð undan Blysfara frá Fremri-Hálsi

Skrifað 7.8.2010 kl. 19:30 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.7.2010

Blysfari stóð sig vel á Vindheimamelum

Blysfari frá Fremra-Hálsi gerði það gott og vakti mikla athygli á kynbótasýningunni á Vindheimamelum sem lauk á laugardaginn. Blysfari, sem er einkar skrefmikill, ganggóður og hágengur 5 vetra alhliðahestur, hlaut 8.31 í aðaleinkunn en dóminn í heild sinni má sjá hér að neðan. Blysfari er undan Arði frá Brautarholti og 1.verðlauna hryssunni Frigg frá Fremra-Hálsi. Arður er eins og margir eflaust vita undan gæðingamóðurinni Öskju frá Miðsitju og Orra frá Þúfu. Blysfari er hæst dæmda afkvæmi Arðs enn sem komið er. Við höfum miklar mætur á Blysfara en Friðrik frumtamdi hann og hefur þjálfað frá upphafi en Ísólfur Líndal Þórisson sýndi hann. Ræktandi og eigandi Blysfara er Jón Benjamínsson og óskum við honum til hamingju með klárinn.






Blysfari verður í hólfi á Lækjamóti í Húnaþingi Vestra það sem eftir lifir sumars. ATH! FOLATOLLURINN ER FRÍR FYRIR 1.VERÐLAUNA HRYSSUR! - eins og pláss leyfir. Fyrir 1.verðlauna hryssur kostar 25 þúsund með vsk. Innifalið í því er hagagjald og ein sónarskoðun. Fyrir aðrar hryssur kostar folatollurinn 70 þúsund með hagagöngu og einni sónarskoðun án vsk. Athugið að 1.verðlauna hryssur ganga fyrir.

Tekið verður á móti hryssum þriðjudaginn 6. júlí, eða eftir samkomulagi. Hesturinn verður settur í miðvikudaginn 7. júlí. Hægt verður að bæta við hryssum hjá Blysfara í sumar, eftir samkomulagi.

Upplýsingar og pantanir eru hjá Friðriki í síma 899-7222 eða Sonju í síma 866-8786.



IS-2005.1.25-038 Blysfari frá Fremra-Hálsi

Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson

Mál (cm):

140   129   137   64   142   36   45   43  
6,3   30,0   18,5  

Hófa mál:

V.fr. 9,2   V.a. 9,2  

Aðaleinkunn: 8,31



Sköpulag: 8,11

Kostir: 8,45


Höfuð: 7,5
   2) Skarpt/þurrt   H) Smá augu   K) Slök eyrnastaða  

Háls/herðar/bógar: 8,0
   5) Mjúkur   7) Háar herðar   D) Djúpur  

Bak og lend: 8,0
   8) Góð baklína  

Samræmi: 8,5
   4) Fótahátt   5) Sívalvaxið  

Fótagerð: 7,5
   6) Þurrir fætur   J) Snoðnir fætur  

Réttleiki: 7,5
   Afturfætur: 1) Réttir  
   Framfætur: D) Fléttar  

Hófar: 9,0
   1) Djúpir   4) Þykkir hælar   7) Hvelfdur botn  

Prúðleiki: 8,5

Tölt: 8,5
   2) Taktgott   3) Há fótlyfta   4) Mikið framgrip  

Brokk: 9,0
   4) Skrefmikið   5) Há fótlyfta  

Skeið: 8,0
   4) Mikil fótahreyfing  

Stökk: 8,5
   2) Teygjugott   4) Hátt  

Vilji og geðslag: 8,5
   2) Ásækni   5) Vakandi  

Fegurð í reið: 8,5
   3) Góður höfuðb.   4) Mikill fótaburður  

Fet: 8,0
   1) Taktgott  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,0

Skrifað 4.7.2010 kl. 19:13 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.6.2010

Fölöld ársins

Á undanförnum dögum hafa þau þrjú folöld sem við áttum von á í ár fæðst, heilbrigð og spræk. Fyrst í heiminn þann 4. júní var rauð hryssa undan Ómi frá Kvistum Veru frá Hjaltastaðahvammi, (f. Hróður frá Refsstöðum). Hryssan er geng, spræk, ljúf og ansi álitleg.


Hryssa undan Ómi frá Kvistum og Veru frá Hjaltastaðahvammi.


Þann 8. júní fæddist rauðblesóttur hestur undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi. Sá rauðblesótti er léttur í spori, skrefgóður og gengur. Blysfari fór í kynbótadóm síðasta vor og hlaut 7,95 í aðaleinkunn 4. vetra gamall. Hann er einkar  framgripsmikill og skrefmikill hestur með frábært geðslag, ásækinn og leggur sig fram við að gera knapanum til geðs. Blysfari er í eigu Jóns Benjamínssonar en Friðrik hefur séð um tamningu og þjálfun á hestinum fyrir hann. Stefnt er með Blysfara aftur í dóm nú í sumar.



Rauðblesóttur hestur undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi.


Síðasta folaldið sem okkur fæddist þetta árið kom 12. júní en þá kastaði Dagný frá Hjaltastaðahvammi (f. Feykir frá Hafsteinsstöðum) rauðstjörnóttri hryssu undan Blysfara frá Fremra-Hálsi. Friðrik fylgdist með fyrstu skrefum hennar í lífinu og myndaði.


Nýköstuð og að standa upp í fyrsta skipti.                              Leitað að sopa.


Að lokum set ég inn myndir af Blysfara frá kynbótasýningunni í fyrra af honum frá því hann var í hryssum í fyrra.



Skrifað 13.6.2010 kl. 12:03 af Friðrik

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.5.2010

Ormur Óskarsson

Nýlega bættist í eigu Friðriks og Sonju veturgamall grár hestur, Ormur frá Syðra-Kolugili undan Óskari frá Blesastöðum og Sínu frá Snjallsteinshöfða, en Sína er dóttir Adams frá Meðalfelli. Óskar vakti mikila athygli á síðasta landsmóti þegar hann kom fram í ræktunarbússýningu frá Blesastöðum. Hann var svo sýndur í kynbótadómi  fimm vetra gamall fyrra og hlaut m.a. 9,5 fyrir hægt tölt og stökk í og 9 fyrir samræmi, tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hægt er að sjá myndband af Óskari af yfirlitssýningu með því að smella hér.


 Óskar frá Blesastöðum og Nils Christian Larsen á LM 2008

Skrifað 18.5.2010 kl. 22:52 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.4.2010

Litið á stóðið

Á meðan Eyjafjallajökull spýr ösku yfir hross undir Eyjafjöllum og víðar þá njóta hrossin hér fyrir norðan lífsins í ró og spekt, að minnsta kosti í bili. Litla stóðið okkar hér í Hjaltastaðahvammi stendur í heyi og fylfullu hryssurnar hafa hægt um sig enda minna en tveir mánuðir að köstun. Ungviðið dafnar ljómandi vel enda býr það við gott atlæti, nægt hey og vatn og fjölbreytilegt landslag til að fara um.


Fylfullar hryssur og ungviði saman                                        Til hægri er Bríet fædd 2007 undan Tór frá Auðsholtshjáleigu



Stígur frá Hjaltastaðahvammi fæddur 2009 undan Seiði frá Flugumýri II



Dagsbrún fædd 2007 undan Þokka frá Kýrholti                   Bylgja fædd 2009 undan Blæ frá Hesti

Skrifað 18.4.2010 kl. 19:45 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.4.2010

Birkir og Darri

Þeir Birkir og Darri frá Hjaltastaðahvammi eru folar á sjötta vetur sem voru í þjálfun hjá Friðriki frá áramótum og fram að páskum. Sonja var búin að frumtemja þá en núna eru þeir báðir orðnir nokkuð reiðfærir. Birkir er undan Þorra frá Þúfu og Sunnu frá Sunnuhvoli en Darri er undan Stíganda frá Leysingjastöðum og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi. Báðir hestarnir eru efnilegir og var síðasti reiðtúrinn fyrir fríið nýttur í að ná nokkrum myndum af þeim. Friðrik er kominn með tvo nýja fola á hús, þá Kolfinn sem er undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Kosningu frá Ytri-Reykjum og Daða sem er undan Gelli frá Árbakka og Dagnýju frá Hjaltastaðahvammi. Þá fór annar foli, Gýmir frá Hjaltastaðahvammi, í tamningu í Lækjamót en hann er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Glennu frá Syðra-Skörðugili. Þessir þrír folar eru allir á fjórða vetur en Kolfinnur og Gýmir voru frumtamdir í haust á Hólum af nemendum í tamningum.


Darri undan Stíganda frá Leysingjastöðum á stökki og brokki.



Birkir undan Þorra frá Þúfu á tölti og brokki.



... og Birkir á stökki.

Skrifað 9.4.2010 kl. 21:23 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.4.2010

Brugðið á leik

Friðrik og Dagur frá Hjaltastaðahvammi brugðu á  leik í Þráarhöllinni á Hólum í dag. Þeir félagar eru farnir að æfa að ríða bæði berbakt og beislislaust sem er einkar semmtilegt en reynir mikið á samspil manns og hests. Friðrik og Dagur eru eins og margir vita bestu mátar og þykir bæði manni og hesti þetta vera ákaflega skemmtileg viðbót í þjálfuninni. Hér að neðan eru myndir frá þessu tilefni, en þær eru því miður dáltíð óskýrar en það er á dagskránni að bregða myndavélinni upp seinna í annarri þjálfunarstund þegar líða tekur á vorið og ná betri myndum.

The pictures below show Friðrik and his horse Dagur from Hjaltastaðahvammur in tölt, trot and gallop without a bridle and saddle. This is really challenging for the rider but jet very enjoying for both rider and the horse.
Riding bridleless and bareback is not possible without excellent trust and connection between rider and horse. Friðrik and Dagur will continue training now and then both bridleless and bareback.















Skrifað 2.4.2010 kl. 21:06 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.1.2010

Jaðar frá Litlu-Brekku í fínu formi

Þegar Friðrik hélt út til náms í Svíþjóðar í haust var Jaðar  lánaður til Háskólans á Hólum þar sem hann hefur verið skólahestur fyrir nemendur á 1.ári í hestafræði. Jaðar veður áfram  í þessu hlutverki sínu a.m.k.  næstu vikur enda hefur hann reynst afar vel að sögn kennara.  Friðrik leit í gær við í þjálfunarstund hjá Ísólfi Líndal og voru teknar nokkrar myndir í leiðinni. Ekki er annað hægt að segja en að hesturinn sé í mjög góðu formi og vel þjálfaður. Hér á eftir fylgja nokkrar myndir frá þessu tilefni. Rétt er að benda á að Jaðar er til sölu og hægt er að fá frekari upplýsingar um hann hér á síðunni undir Til sölu.

Our horse, Jaðar from Litla-Brekka, was loaned to Hólar University this fall when Friðrik went to study in Sweden. During this period he has been a school horse for students studying equine science and horsemanship. Jaðar will continue with his duties at Hólar for the next couple of weeks. Yesterday Friðrik saw him in a training session with Ísólfur Líndal, a riding instructor at Hólar. Jaðar was well trained and in excellent form. The following pictures cover this session.  Jaðar is for sale and you can find further information about him by viewing the For sale page.

Jaðar á tölti í upphitun.                                            Jaðar á brokki í upphitun.


Krossgangur á tölti.                                  Meira brokk.


Tölt úti.                                                                   Svo var fimmti gírinn auðvitað til staðar...

Skrifað 25.1.2010 kl. 16:57 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.12.2009

Jólakveðja

Óskum hestamönnum, vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Með þökkum fyrir árið sem senn er að líða og óskum um góðar stundir á komandi ári.




Jólakveðja frá Hjaltastaðahvammi

Skrifað 24.12.2009 kl. 12:04 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.9.2009

Folöld 2009

Við fengum þrjú folöld þetta sumarið undan þremur mismunandi hestum og er fyrir löngu kominn tími til að greina frá þeim.

Undan Dagnýju og Blæ frá Hesti fengum við brúna hryssu sem hefur verið nefnd Bylgja. Dagný er undan Feyki frá Hafsteinsstöðum og Þrístjörnu og er því systir Dags. Blær er með 8,50 í aðaleinkunn í kynbótadómi og náði m.a. góðum árangri í sumar á Fjórðungsmóti Norð-Vestlendinga og var í úrslitum í A-flokki gæðinga.



Bylgja frá Hjaltastaðahvammi                               Blær frá Hesti

Undan Stjörnu og Seiði frá Flugumýri II fengum við brúnan hest. Stjarna er m.a. móðir Veru Hróðursdóttur sem var að koma ný inn í ræktuna hjá okkur í sumar. Seiður stóð m.a. efstur á síðasta Landsmóti í flokki 4. vetra hesta og var sýndur aftur í vor og hlaut 8,52 í aðaleinkunn. Hesturinn er ónefndur sem stendur.


Seiðsson frá Hjaltastaðahvammi                          Seiður frá Flugumýri II

Undan Kosingu fengum við rauðstjörnóttan hest undan Tinna frá Kjarri. Tinni er með 8,38 í aðaleinkunn úr kynbótadómi 5 vetra gamall og á eflaust eftir að bæta það næsta vor. Hesturinn hefur verið nefndur Kjarval.



Kjarval frá Hjaltastaðahvammi                         Tinni frá Kjarri

Skrifað 28.9.2009 kl. 8:08 af Friðrik

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 21111
Samtals gestir: 6215
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 01:37:35

HJALTASTAÐAHVAMMUR  |  560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND  |  +354 899 7222  |   INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS